Færsluflokkur: Bloggar

Rúv...

Þá er það búið - þegar sauðirnir sem ráða í Efstaleitinu eru búnað loka Svæðisstöðvunum getiði tekið slagorðið "útvarp allra landsmanna" og lagt því í aftursætið á jeppanum sem Páll útvarps"stjóri" keypti fyrir afnotagjöldin mín, ekið því út á granda og hent því í sjóinn...

 Þetta er enn eitt frábæra útspilið í þessu einkarekna rugli sem Páll virðist vera með - ef ykkur finnst ég vera harður við Palla útskýriði þá af hverju hann les sjálfur fréttir um sjálfan sig á tvöföldum launum meðan landsbyggðin er klippt út úr myndinni með einu pennastriki. Segiði mér hvernig hann getur krafið G.Pétur um að skila viðtali sem hann á sjálfur samkvæmt höfundarrétti - og síðan lesið sjálfur frétt um það um kvöldið!

Ég er að borga afnotagjöld fyrir þetta rugl!

Ég veit að það er veður í Reykjavík - yfirleitt rigning -  og veit að það er umferð í Reykjavík - Ég hlustaði á útvarpsmenn tala stanslaust um það fyrstu 16 ár ævi minnar! Vælandi yfir rigningu þegar ég var í 20 stiga hita í heyskap - lofandi sólina þegar var bylur á Austurlandi - þetta var hægt að losna við klukkara á dag þegar Svæðisútvarpið sagði manni eitthvað sem skipti máli fyrir þá sem ekki búa fyrir sunnan. Nú er það endanlega búið og í mínum huga munurinn á Rúv og Bylgjunni orðinn enginn - Nema Bylgjan er ekki rekin fyrir peningana okkar...

 

 


mbl.is 700 milljóna sparnaður hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borðtennis,

Fyrir mann sem er eiginlega alltaf sammála síðasta ræðumanni var þetta ekki góður dagur í sjónvarpinu!

hehehe... 


Hugmyndir?

Ég var að horfa á þetta myndband... Ég mæli ekki með því. 

Þessir þrír siðlausu hugleysingjar sem lúberja jafnaldra sinn eru greinilega á góðri leið með að verða handrukkarar og hasshausar framtíðarinnar.

Og hvað er til ráða? Löggan er að spjalla við þá um hvað þeir gerðu... Það er reyndar til á vídeói...

Foreldrar þeirra eru greinilega ekki alveg með stjórn á þessu - þetta er ekkert illa meint en ef þeir eru að lesa þetta þá samhryggist ég þeim með að hafa misst boltann...

Kannski kemur kæra út úr þessu - fjársekt, sem væri reyndar ágætt fyrir fórnarlambið en ekki þá sem þeir ræna til að eiga fyrir sektinni. Síðan er náttúrulega mögulegt að þeir fari inn fyrr en síðar - kannski á Hraunið þar sem þeir geta lært glæpafræðin almennilega og komið út skipulagðari.

Hvað er þá það skársta sem hægt er að gera? Senda þá í sveit í Mjóafjörð eða eitthvað? Láta þessa krakka lyfta böggum og moka flór þangað til þeir læra mannleg samskipti? Verst að bændur hafa líklega eitthvað annað með tímann að gera en ala upp krakkafífl að sunnan...  

Einhverjar hugmyndir? 

 


mbl.is Árásarmenn í skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vita hvenær er nóg komið

Davíð fór á kostum í þessari blessuðu ræðu....

sumt var fyrirsjáanlegt - "Jón Ásgeir er evil"... 

 Hann náði líka að benda á eiginlega alla sem hægt var að benda á þegar kemur að bankahruninu og segja "Þeim að kenna". 

Ríkisstjórnin hlustaði ekki, fjármálaeftirlitið gerði ekkert, bankarnir lugu, allir eru vondir við mig...

Það eina sem vantaði var einhverskonar ábyrgð á þætti seðlabankans í þessu öllu. Hún virðist ekki vera til staðar í heiminum sem Dabbi býr í. Afsakið að ég skilji þetta ekki en ég hélt að seðlabankinn (skrifist alltaf með litlum staf) væri "banki bankanna" hann réði vöxtum og amk. einhverjum lánum til hinna bankanna?

En ég hlýt að hafa rangt fyrir mér - þetta er öllum að kenna - nema Davíð... 


OLÍA!

Tekið úr frétt á Visir.is...

"Vegna olíuleitar í Færeyjum og nýrra vísindakenninga um tengsl olíulinda og eldvirkra svæða hafa sex alþjóðleg olíufélög nýlega sent sérfræðinga til rannsókna á Íslandi. Þá eru að fást nýjar vísbendingar með rannsókn Bryndísar Brandsdóttur á hafsvæðinu milli Kolbeinseyjar og Ægishryggs og rannsókn Olgeirs Sigmarssonar á fjallinu Hvítserk á Austurlandi. Þar hafi fundist zirkon-krystallar, sem séu miklu eldri heldur en elsta berg á Íslandi. Þeir séu það gamlir að þeir hljóti að vera úr meginlandsskildinum.

Þetta séu vísbendingar um að meginlandsskjöldurinn sé undir Borgarfirði eystra og ef hann sé samhangandi við Drekasvæðið ætti hann að teygja sig alla leið þangað. Þetta segir Ármann auka líkurnar á olíu mun nær Íslandi og jafnvel undir landinu. Úr því að sérfræðingar telji líklegt að olía finnist í Færeyjum sé mjög líklegt að það sama gildi um Ísland. Úr því fáist ekki skorið nema með rannsóknum." 

 Hvaða! Erum við að tala um að Bogginn verði loksins réttmæt höfuðborg þessa skers? 


Bjarni Bjarni Bjarni...

Ég ætlaði að reyna að skrifa eitthvað fyndið um Email-sendingar Bjarna framsóknarmanns en ég get bara ekki ákveðið hvar ég á að byrja - ég varpa þess vegna boltanum yfir á Heimi sem er mun betri penni en ég - go nuts :)

Hangikjét!

Jólin eru að koma börnin mín og þá verður maður að tryggja sér hangikjöt - Foreldrar mínir hafa síðustu ár framleitt besta sauðahangikjöt sem ég hef smakkað og ég verð að nota aðstöðu mína á blogginu og benda ykkur á þau.

Þetta er selt bæði í rúllum og lærum og eru þau auk þess með lambakjötið í öllum stærðum og gerðum... 

 Slóðin er - http://austurlamb.is/index.php?option=com_content&view=article&id=14&Itemid=20

Annars getiði líka bara hringt í 4729962 og spjallað við Mömmu. 

Gleðileg jól  


HVAÐA!!!!

Ef þetta er satt vil ég fá mínar skuldir afskrifaðar!

Ég er líka að velta fyrir mér að hætta að borga af lánunum mínum - bankarnir eru jú allir í eigu ríkisins og ef þeir ætla að láta þetta óáreitt hlýtur þeim að vera sama þótt ég borgi ekki...

Hvernig er annars með Birnu bankastjóra?

Leiðréttiði mig ef þetta er rugl en hún keypti hlut í Glitni - eða reyndi - sem hún þurfti ekki að borga af því að arðurinn af hlutnum átti að gera það fyrir hana...

Þetta er sambærilegt við að ég fái lán í banka - segjum upp á milljón því mér finnst það mikill peningur! - ég segi síðan bankanum að vextirnir borgi lánið bara upp - en ég fæ samt milljónina líka í cash til og fer í Kringluna!!! Er siðleysið orðið slíkt að ríkið ráði bankastjóra í vinnu þrátt fyrir að hún hafi tekið þátt í þessu rugli viku fyrr!

Hvað ætli sé síðan að gerast í máli kellingarinnar sem seldi öll sín bréf korteri áður en bankarnir voru ríkisvæddir - um það sá miðlarinn hennar - sem vill svo heppilega til að er vinur Dabba...

Þetta verðu allt gleymt eftir viku er það ekki? en það er eins gott að ég borgi allt mitt á réttum tíma - annars fæ ég dráttarvexti frá innheimtumanni ríkisins...

Beygjum okkur bara öll áfram og tökum við þessu rugli - við erum svo svakalega góð í því  

 


mbl.is Voru skuldir stjórnenda Kaupþings afskrifaðar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Enn einn blogg-besservisinn

Tónlistarspilari

- Dagarnir

Höfundur

Guðmundur M Ásgeirsson
Guðmundur M Ásgeirsson
Höfundur er að austan.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...cover
  • ...braedslandv
  • n62116694017 8947
  • 04apr0409 pic30
  • 04apr0409 pic29

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 4105

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband