Barkavesen

Það er alveg með ólíkindum hvað það getur verið þreytandi að vera söngvari í íslensku veðurfari og nú er ég kominn á enn einn sýklalyfjakúrinn - þetta er nr.6994834345 reiknast mér ;)

Það er samt MJÖG fátítt að þetta verði til þess að ég forfallst - reyndar eru þau skipti teljandi á fingrum einhverra handa en nú er komið að einu slíku

Núna á fimtudagskvöldið var ég búinn að lofa mér í trúbbastemningu á Sauðárkróki - það er jú sæluvika og svona þannig að ég ætlaði að taka þátt í stuðinu en hálsinn á mér er ekki sammála...

Það er nefnilega þannig að eftir 10 ár er ég loksins farinn að hlusta aðeins á hvað hann hefur að segja - hefði mátt gera það fyrr og mun oftar :)

Ég biðst forláts en tek það fram að ég ætla að reyna að harka af mér á föstudaginn :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Gígja Þórðardóttir

Það er nú mannlegt að forfallast af og til.

Vona að hálsinn/barkinn verður góður áður en þú veist af.... farðu bara vel með þig -

annars væri nú ansi gott ef þú kynnir táknmál .... þá myndi hálsinn/barkinn hvílast enn nú meir ; )

Margrét

Margrét Gígja Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 17:04

2 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Þú ert nú svo snjall að þú getur sungið með rassgatinu - GAS GAS GAS - en þú ættir nú kannski að byrja á því að hætta að reykja gamli......

Ólafur Tryggvason, 30.4.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Erfitt að vera söngvari á Íslandi, það er satt. Veðurfarið er þessháttar.

Ég klikkaði næstum á jarðarför um daginn sem ég átti að syngja í 2 lög. Ég fór til læknis í fyrsta skipti á ævinni til að biðja um stera. Hann lét mig anda að mér vatnsgufu með adrenalíni og það svínvirkaði. Ég kláraði jarðaförina skammlaust.  

Gangi þér vel, þetta er hrikalega hvimleitt.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 30.4.2008 kl. 20:31

4 identicon

Farðu bara vel með þig. Ekki svo vitlaus punktur hjá King hér að ofan  Kannski Freddie hafi einhver áhrif líka.

Bonný (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Enn einn blogg-besservisinn

Tónlistarspilari

- Dagarnir

Höfundur

Guðmundur M Ásgeirsson
Guðmundur M Ásgeirsson
Höfundur er að austan.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...cover
  • ...braedslandv
  • n62116694017 8947
  • 04apr0409 pic30
  • 04apr0409 pic29

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 4360

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband