19.4.2008 | 09:30
Damien Rice, Emilíana Torrini og Magni í Bræðslunni í sumar!
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystri verður haldin helgina 25. - 27. júlí í sumar.
Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin verður haldin en undanfarin ár hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low, Aldís og Jónas Sigurðsson.
Bræðslan hefur vakið mikla lukku þau 3 ár sem hún hefur verið haldin og hafa um 1.000 manns sótt hana að jafnaði. Íbúafjöldi Borgarfjarðar Eystri telur um 140 manns og því hefur verið um töluverða margföldun að ræða þessa helgi í þorpinu.
Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndum síldarskúr þarem tónleikar hátíðarinnar fara fram í ansi skemmtilegri umgjörð.Það er Bræðslunni mikill heiður að uppljóstra um dagskrána í sumar því hún er ekki af verri endanum.
Írska söngvaskáldið Damien Rice hefur boðað komu sína en Damien ætti að vera allnokkrum íslendingum að góðu kunnur enda komið hingað þrisvar til tónleikahalds. Tvisvar hefur Damien spilað fyrir troðfullu húsi á NASA og svo tók hann þátt í náttúrutónleikunum í Laugardalshöll á sínum tíma. Damien hefur gefið út tvær plötur á ferlinum sem selst hafa í miljónum eintaka og því um mikin hvalreka að ræða fyrir Bræðsluna. Damien hefur verið beðinn um að koma fram á þrennum tónleikum Leonard Cohen á Írlandi í sumar enda Damien mikill aðdáandi Cohen og öfugt.
Emilíana Torrini ætlar að koma fram á Bræðslunni í sumar. Emilíana er að hluta til ábyrg fyrir því að Bræðslan fór af stað á sínum tíma því hún kom fram fyrsta árið sem hún var haldin og svo einnig árið eftir og þá dró hún Belle & Sebastian með sér. Emilíana tók sér frí í fyrra en mætir nú aftur í Bræðsluna galvösk. Emilíana er búin að helga tíma sínum undanfarið við upptökur á nýrri plötu sem væntanleg er á þessu ári.Magni kemur einnig fram í Bræðslunni í sumar.
Magni er íslendingum að sjálfsögðu vel kunnur sem forsprakki Á móti sól og ekki síst fyrir þáttöku sína í Rockstar Supernova. Magni er ættaður úr Borgarfirði Eystri og hefur verið einn af skipuleggjendum hátíðarinnar með Áskeli Heiðari bróður sínum frá byrjun. Magni mun að öllum líkindum koma fram einn síns liðs í Bræðslunni í sumar.Fyrirkomulag forsölu á Bræðsluna verður kynnt von bráðar en dagskráin og helgin er ljós þannig að fólk getur farið að taka helgina frá.
http://www.borgarfjordureystri.is/
http://www.damienrice.com/
http://www.myspace.com/emilianatorrini
http://www.myspace.com/magnirocks
Um bloggið
Enn einn blogg-besservisinn
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
amotisol
-
huld
-
latur
-
eythora
-
olafurbj
-
hallibjarna
-
nesirokk
-
jakobsmagg
-
palmig
-
gardar
-
ingvarvalgeirs
-
toreybirna
-
bryndisvald
-
drifamagg
-
dagurbj
-
saxi
-
gudnim
-
doddilitli
-
king
-
swaage
-
lubbiklettaskald
-
sverrir
-
bbking
-
gummigisla
-
vitinn
-
gummisteingrims
-
ea
-
jahernamig
-
binni29
-
stefanbogi
-
peturorn
-
gummiarnar
-
hproppe
-
gleraugun
-
beggipopp
-
gretarorvars
-
helgadora
-
krakkarnir
-
killjoker
-
sibbulina
-
bergdisr
-
hannamar
-
daxarinn
-
stormsker
-
reynalds
-
lovelikeblood
-
ernabjork69
-
um683
-
birgitta
-
bofs
-
lehamzdr
-
zeriaph
-
heidathord
-
lena75
-
vinursolons
-
omarragnarsson
-
sirrycoach
-
steini69
-
gunnurol
-
hallurmagg
-
gullilitli
-
beggita
-
skjatan
-
skordalsbrynja
-
nkosi
-
kisabella
-
kristinnagnar
-
jea
-
perlaoghvolparnir
-
hallurg
-
bergrun
-
sven
-
villialli
-
fjola
-
lostintime
-
danjensen
-
julianamagg
-
presley
-
himmalingur
-
gunnarpalsson
-
swiss
-
prinsinn
-
binnag
-
skjolid
-
berg65
-
audurvaldis
-
hreinsamviska
-
majaogco
-
zsapper
-
jonhalldor
-
olofanna
-
steinunnolina
-
ornsh
-
rattati
-
knus
-
astaz
-
sjos
-
trollchild
-
bestfyrir
-
stulliogstina
-
ruber
-
zuuber
Athugasemdir
Ég hef aldrei kunnað vel við hann...
Ingvar Valgeirsson, 19.4.2008 kl. 22:33
...sosum allt í lagi greyið....
Haraldur Bjarnason, 19.4.2008 kl. 22:36
Langflottastur :)
Hanna, 22.4.2008 kl. 11:06
Riise!
Þórður Helgi Þórðarson, 23.4.2008 kl. 12:43
Ásdís ég er sammála. Magni er bara sjarmatröll og frábærlega góður söngvari:)
Sigurbjörg Guðleif, 23.4.2008 kl. 18:55
Mér hefur verið hundilla við hann frá því hann vann mig í Hemmaþættinum hér um árið. Svo er hann utan af landi, sem er náttúrulega agalegt.
Ingvar Valgeirsson, 23.4.2008 kl. 20:55
Sannar það bara að austfirðingar eru bestir ;)
Dagur Björns (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 00:56
Ooops. Vissi ekki að það væri til heimasíða fyrir Borgarfjörð. Fín síða, gott að vita af henni þegar maður leggur leið sína austur á bóginn. Kveðjur frá útlandinu, B
Baldur Gautur Baldursson, 28.4.2008 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.